Nú er ég ennþá á réttri leið. Ég léttist hægt en rólega. Ég er ekki lengur hjá Báru, ég er að sjá hvað gerist án hennar. Getur verið að ég haldi áfram eftir jól, mér finnst þetta of bindandi, því ég þarf að skreppa upp í bústað og vinna og einnig finnst mér tíminn skerast svo í sundur þegar ég fer að heiman í hádeginu þrisvar í viku.. Ég ætla aldrei að vera komin heim aftur. Annars tel ég karólínurnar mínar og þær hjálpa mér að minnka, ég geng tvisvar til þrisvar í viku og finnst það bara fínt. Lífið í dag er tiltölulega gott, borðaði hafragrautinn minn í morgun og í hádeginu egg og salat, og drakk undanrennu með. Það kemur pottakona í heimsókn og býr til mat fyrir mig og nokkrar kellur í kvöld, vona að það verði gaman……
Staður og stund
október 31, 2007Fór á Sigló
október 23, 2007Jæja, ekki hef ég verið sérlega dugleg að láta vita af mér. Ég skrapp til Siglufjarðar og var þar í nokkra daga með sýningu og sölu á glerinu mínu. Siglufjörður er frábær staður, takturinn er allt annar en hér í Reykjavík. Tengsl sýnist mér vera nánari milli fólks og einhvern veginn ganga hlutirnir öðruvísi. Ég var dugleg þarna og hagaði mér samkvæmt uppskrift. Þegar heim var komið fann ég að stressið færðist yfir og er ég að reyna að skrúfa niður stresspúkana. Þyngdin hefur stöðugt farið niður og er ég að léttast svona um 500 gr til 1 kg á viku að meðaltali. Tel að það sé sæmilegt. Hve lengi var ég að éta þetta á mig??? Ég er núna þreytt eftir ferðina og er á fullu að vinna að Jónasi Hallgrímssyni sem ég þarf að klára fyrir 10 nóvember (120 stykki) Lífið heldur áfram, lifðu því lifandi……kv
Týndist um tíma
október 11, 2007Jæja, nú er ég aftur komin. Ég var að selja gler í Ráðhúsi Reykjavíkur frá föstudegi til mánudags og var búin á því, gjörsamlega eftir þetta átak!!! Ég er ekki búin að vera dugleg í fráhaldinu , einbeitingin hvarf og þegar tími gafst, var stokkið af stað og fengið sér eitthvað. Ég er að koma á morgun í æfingarnar og finn þá hvort eitthvað hefur gerst, upp eða niður. Vonandi eitthvað niður….. Magga systir er sú alduglegasta, hún er staðföst og heldur sér algjörlega við karólínutalninguna…..Svona eiga stelpur að vera…. Jæja, sjaumst á morgun kl 12….kv
Vinnudagur í dag
október 4, 2007Ígær var ég nokkuð ánægð með sjálfa mig. léttist um 600 grömm…..Þrátt fyrir nokkrar djúpsteiktar rækjur í Norræna húsinu þegar ég fór á kynningu á Fassbinder. Fundurinn hjá Báru var frábær, allt í einu skildi ég lögmál fitufrumanna!!! Hvílíkur léttir…. Ég ætla að vera dugleg í dag, því gærdagurinn var sá léttasti í sögu léttunar Drafnar. Ég verð í dag að setja upp básinn minn í Ráðhúsinu fyrir helgina og kemst ekki í neitt sukk. Tek með mér eitthvað létt og nærandi alla helgina. Lofa að losa mig við eitthvað yfir helgina….Lögmál lífsins er að lifa lífinu lifandi!!!
Helgin er aldeilis komin
september 30, 2007Allt gengur eins og það á að ganga. Gærdagurinn var bara nokkuð góður, skrapp í IKEA og keypti smávegis fyrir markaðinn í ráðhúsinu og fann náttúrulega út að sófinn sem ég ætlaði að kaupa fyrir sumarbústaðinn er dottinn úr framleiðslu!! Sj……. annar sófi bíður mín í annarri búð , miklu flottari en hinn, er viss!! Dóttir mín bauð upp á pylsu og þáði ég án þess að hugsa…æ en hún var góð. Til hvers er að súta , halda áfram þrátt fyrir smáfall. Lífið endar einhvern tíma og maður verður að lifa því á meðan maður hefur það. Ekki veit ég hvað kemur á eftir. Annað verð ég að viðurkenna, Siggi fór út með barnabörnin og keypti ís og sjeik….og ég át minn skerf. Nammidagur og sukk. Skamm Dröfn…. eða þannig.
Dagurinn í dag hefur verið skammlaus. Fékk mér rúnstykki með 17% osti og hvítt te í morgunmat. Tómatasalat og egg með smá kjúklingi í hádegi, ferskju um miðjan daginn og svo verður borðað salat með lambakjöti í kvöld. Ég er bara farin að hlakka til kvöldsins. Matarfíkillinn sjálfur.
Nú er að duga eða drepast
september 29, 2007Ég gleymdi að skrifa í gær, en nú verð ég að koma með daginn í dag og gær. Gærdagurinn var tiltölulega góður. Ég fylgdi gullnu reglunum eftur bestu getu en gekk í hálftíma, reyndar bara út í búð og til baka með smákrók til að gera aðeins meira en skylduna.
Mataræðið hélst tiltölulega vel og ég fann að ég get ef ég vil!! Dagurinn í dag var bara góður þar til í kvöld. Mér var boðið í frábæran mat hjá vinkonu minni ásamt tveimur öðrum .Hún er grænmetisgella og það var einmitt það góða, en það smakkaðist svo vel að ég fékk mér aðeins meira en gott var, þannig að karólínurnar stukku upp fyrir leyfðan skammt. Bæti úr því á morgun.
Ég var mjög upptekin kona í dag og komst ekki í leikfimina. Ég fór upp í bústað til að sjá hvernig gengur að gera við eftir að rann vatn inn í hann í nokkra daga. Þeir eru enn að reyna að þurrka það sem þeir geta og hafa sagað stórt gat í gólfið í stofunni til að komast undir hann til að endurnýja allt undir honum.. Depró. Annars gengur lífið sinn vana gang og ég er hress og kát….
Ekkert nema gleði
september 27, 2007Mér líður ágætlega í dag. Léttist um 100 grömm, en það er ekki endilega það sem ég er að hugsa um heldur hvernig mér líður. Ég hef slitgigt í hnjánum og hef fundið til í þeim eiginlega í allt sumar. Nú er sársaukinn horfinn að mestu og vona ég að þessi bati haldi áfram. Dagurinn hefur verið hlaup fram og til baka og ekkert komist í verk. Þetta kalla ég frjóa tímann, því á morgun verð ég skipulögð og virk og klára allt sem ég byrjaði á í dag. Mataræðið hélst nokkuð rétt í dag og ætla ég framvegis að halda mér á 5 maltíðum á dag. Þegar maður gerir það er maður ekkert svangur á milli… Lógískt!! Ég var í leikfiminni í ha´deginu og fór til Möggu systur í kaffi á eftir. Hún er svakalega dugleg og heldur mataræðinu sínu í fínu formi. Auðvitað tekur tíma að finna riþmann í þessu þegar maður hefur látið gossa fram að þessu. Nú er að duga eða drepast. Á morgun sýnist mér veðrið ekki vera mér hliðholt fyrir hjólreiðarnar, þannig að ég sé til hvað eg geri. (Sýnist leti vera eitthvað að spila með mig núna)
Áfram!!!
september 25, 2007Nú er að segja frá deginum í dag. Ég breytti aðeins út af planinu, fór í Grænan kost og skipti með dóttur minni skammti af spínatböku, mjög gott. Annars varð dagurinn nokkuð góður hjá mér. Í staðinn fyrir að hjóla 30 mínútur, varð veðrið til þess að þær urðu að klukkutíma.
Ég er búin að hugsa út lista yfir góðgæti morgundagsins.
Morgunmatur Hafragrautur og safi úr appelsínu, epli og engiferrót
Hádegismaturinn verður brauðsneið, egg og stórt salat
Miðdagurinn gefur mér skyr.is
Kvöldmaturinn verður stórt salat með fiski og kotasælu
Ég fer í leikfimi á morgun þannig að hreyfingin verður í hadeginu hjá Báru
Mér hefur liðið vel í dag og hann hefur gefið mér jákvæða innspýtingu
Átakið mitt
september 24, 2007Nú er ég búin að vera í átaki í TT hópi hjá Báru. Þetta hefur gengið nokkuð vel, að hluta til fer þyngdin niður og orkan upp. Ég hef verið í svolitlu rugli með mataræðið en ég ætla núna að taka þessu föstum tökum. Frá og með NÚNA.
Ég er búin að setja saman matseðil fyrir morgundaginn og vona ég að hann haldist.
Morgunmatur Hafragrautur og glas af heimagerðum appelsínusafa.
Hádegi skyr og banani
Síðdegi Hrökkbrauð og L&L og 17% ostur og kaffi
Kvöld Kjúklingasalat og epli
Ég hef ákveðið að vera dugleg að hjóla á morgun og reikna með 30 mínútna ferðeftir Ægissíðunni
Nú er að sjá hvað gerist!!
Prufufærsla
september 24, 2007Tékk -tékk!