Jæja, ekki hef ég verið sérlega dugleg að láta vita af mér. Ég skrapp til Siglufjarðar og var þar í nokkra daga með sýningu og sölu á glerinu mínu. Siglufjörður er frábær staður, takturinn er allt annar en hér í Reykjavík. Tengsl sýnist mér vera nánari milli fólks og einhvern veginn ganga hlutirnir öðruvísi. Ég var dugleg þarna og hagaði mér samkvæmt uppskrift. Þegar heim var komið fann ég að stressið færðist yfir og er ég að reyna að skrúfa niður stresspúkana. Þyngdin hefur stöðugt farið niður og er ég að léttast svona um 500 gr til 1 kg á viku að meðaltali. Tel að það sé sæmilegt. Hve lengi var ég að éta þetta á mig??? Ég er núna þreytt eftir ferðina og er á fullu að vinna að Jónasi Hallgrímssyni sem ég þarf að klára fyrir 10 nóvember (120 stykki) Lífið heldur áfram, lifðu því lifandi……kv