Nú er ég ennþá á réttri leið. Ég léttist hægt en rólega. Ég er ekki lengur hjá Báru, ég er að sjá hvað gerist án hennar. Getur verið að ég haldi áfram eftir jól, mér finnst þetta of bindandi, því ég þarf að skreppa upp í bústað og vinna og einnig finnst mér tíminn skerast svo í sundur þegar ég fer að heiman í hádeginu þrisvar í viku.. Ég ætla aldrei að vera komin heim aftur. Annars tel ég karólínurnar mínar og þær hjálpa mér að minnka, ég geng tvisvar til þrisvar í viku og finnst það bara fínt. Lífið í dag er tiltölulega gott, borðaði hafragrautinn minn í morgun og í hádeginu egg og salat, og drakk undanrennu með. Það kemur pottakona í heimsókn og býr til mat fyrir mig og nokkrar kellur í kvöld, vona að það verði gaman……
nóvember 10, 2007 klukkan 3:00 pm
Hvernig gengur þér? Ég missti einhvern vegin alveg af þér þessa síðustu daga hjá Báru og gat þess vegna aldrei sagt þér frá því að það var almennur áhugi á því í saumaklúbbnum mínum að koma til þín og fylla glerofninn þinn! Ertu ekki til í að senda mér póst og láta mig vita hvort og hvenær þig langar til að taka á móti okkur!
Bestu kveðjur,
Bryndís -sem er enn hjá Báru!